Press "Enter" to skip to content

Fossavatnsgangan 2018

Hin sístækkandi Fossavatnsgangan var haldin síðustu helgi á Ísafirði. Yfir 1.100 þátttakendur voru skráðir til leiks í ár í hinum ýmsu vegalengdum. Í blíðu og frábæru færi var lagt af stað og eftir rúmar tvær klukkutundir komu fyrstu keppendur í mark í 50 km göngunni en það er vegalengdin sem keppendum hefur verið að fjölga jafnt og þétt.

Fyrstu þrjú sætin í karlaflokki féllu núverandi og fyrirverandi ólympíuförum í vil. Í fyrsta sæti var Ilya Chernou­sov en hann vann til bronsverðlauna á Vetrarólympíuleikunum í Sochi árið 2014.  Saga af þeim verðlaunum er þó flóknari en þetta þar sem bæði gullverðlaunahafinn og silfurverðlaunahafinn voru settir í bann vegna lyfjahneykslis sem kom upp árið 2016 og Ilya var færður upp í 1. sæti um stund. Í byrjun þessa árs var þessi ákvörðun afturkölluð og hann færður aftur í 3. sætið þó að sætin fyrir ofan hann eru skráð auð. Merkileg saga.

Í öðru sæti um helgina lenti Al­ex­and­er Panzhinskiy en hann er silfurverðlaunahafi frá Ólympíuleikunum 2010 í Vancouver. Í þriðja sæti var svo Svorri Eyþór Einarsson en hann keppti fyrir Íslands hönd á síðustu Vetrarólympíuleikum.

Í kvennaflokki var það Maria Gräfn­ings sem lenti í fyrsta sæti, Anouk Faivre Picon var önnur og Sel­ina Gaspar­in varð þriðja en hún var silfurverðlaunahafinn í skíðaskotfimi á Vetrarólympíuleikunum árið 2014. Þess má geta að hún er gift Ilya Chernou­sov sem sigraði karlaflokkinn.

Það var því mikið stuð á Ísafirði þessa helgina eins og oft áður og gaman að sjá hvað Fossavatnsgangan fer stækkandi ár frá ári.

Comments are closed.