Af Stað – Fyrir byrjendur

25.900 kr.

2023 dagsetningar:
– 23. janúar
– 8. maí
– 28. ágúst

Category:

Description

Ef þig hefur langað til að prófa útivist og fjallgöngur en veist ekki í hvorn fótinn þú átt að stíga – eða hvar þú átt að byrja, þá er þetta námskeið akkúrat fyrir þig!

Við kynnum til leiks Af Stað – Fyrir byrjendur, námskeið sem kennir grunninn í útivist og fjallgöngum.

Námskeiðið er uppbyggt þannig að með meiri þekkingu og aukinni reynslu verða göngurnar meira krefjandi. Farið er rólega af stað og miðað er við að þátttakendur séu byrjendur eða stutt komnir á þessu sviði.
Í göngunum er farið yfir atriði eins og göngutækni og líkamsbeitingu, rétt stilltan búnað og notkun hans ásamt lausnum við hinum ýmsu kvillum sem geta komið upp á. Í rafrænu kennslustundinni er loks farið yfir atriði sem snúa að fatnaði, nesti, öryggisbúnaði og leiðarvali.

Námskeiðið er kennt með það í huga að þátttakendur geti haldið áfram á eigin vegum af öryggi og með ánægju.

Námskeiðið er kennt í 4 vikur á virkum kvöldum. Því lýkur loks á langri dagsgöngu um helgi þar sem allt kennsluefnið kemur saman og þátttakendur útskrifast, tilbúnir í framhaldið.

Göngurnar hefjast kl. 18 á virkum kvöldum, nema sú síðasta sem hefst kl. 9 um helgi.

Á árinu 2023 verður boðið upp á 3 byrjendanámskeið (janúar – maí – ágúst) og eru dagsetningarnar hér að neðan.

– Úlfarsfell – 23. janúar EÐA 8. maí EÐA 28. ágúst
– Rafræn kennslustund – 26. janúar EÐA 11. maí EÐA 31. ágúst
– Helgafell í Hafnarfirði – 30. janúar EÐA 15. maí EÐA 4. september
– Mosfell – 2. febrúar EÐA 17. maí EÐA 7. september
– Litli Meitill – 6. febrúar EÐA 22. maí EÐA 11. september
– Móskarðshnúkar – 9. febrúar EÐA 25. maí EÐA 14. september
– Smáþúfur Esjunnar – 13. febrúar EÐA 30. maí EÐA 18. september
– Sogið í Krýsuvík – 18. febrúar EÐA 3. júní EÐA 23. september

 

Nánari upplýsingar eru veittar með tölvupósti á netfanginu info@afstad.com eða í síma okkar 790 2800.

Verð : 25.900kr.

Veittur er 20% afsláttur af seinna gjaldi ef hjón eða pör skrá sig saman.
Sendur er reikningur á þátttakendur og telst sæti frátekið þegar hann er greiddur.
Nánari upplýsingar, fyrirkomulag og dagskrá eru sendar með staðfestingarpósti.

Ath. námskeiðið fæst niðurgreitt hjá flestum stéttarfélögum. Við hvetjum alla til að kanna það hjá sínu.

Ferðaskilmálar

Vertu í bandi – spurðu – komdu með!