Elliðatindar 864m

From: 8.900 kr.

2024 dagsetningar:
– 9. mars

Boðið er upp á sérferðir fyrir hópa – sendu fyrirspurn á info@afstad.com

Category:

Description

Elliðatindar standa fallegir á Snæfellsnesi og bjóða upp á mikið útsýni af toppnum. Sjá má vel yfir Faxaflóa, Mýrarnar og alla leið á Snæfellsjökul á góðum degi. Við ætlum að gera okkur glaðan dag og fara þangað í útsýnisferð.

Ferðin hefst við Hofsstaðaskóg sem er í um 2 klst fjarlægð frá Reykjavík. Gengið verður eftir vegi til að byrja með og síðan stefnt á fjallið sjálft eftir fallegu gili. Ganga er 13km löng með um 900m hækkun og mun taka okkur 6-7 klst. Þetta er frábær ferð fyrir alla þá sem treysta sér í lengri göngudag.

Nánari upplýsingar eru veittar með tölvupósti á netfanginu info@afstad.com eða í síma okkar 790 2800.

Innifalið:
-Leiðsögn

Verð : 8.900kr
Sendur er reikningur á þátttakendur og telst sæti frátekið þegar hann er greiddur.
Nánari upplýsingar um útbúnað, fyrirkomulag og dagskrá eru sendar með staðfestingarpósti.

Ferðaskilmálar

Vertu í bandi – spurðu – komdu með!