Af Stað – Toppar 2024

From: 85.000 kr.

Gerðu 2024 að mögnuðu fjallaári, því besta sem þú hefur upplifað!

Category:

Description

Vantar þig áskorun fyrir komandi ár, fasta liði í dagatalinu, hóp til að hvetja þig áfram og faglega leiðsögn? Þetta er þá verkefnið fyrir þig!

Af Stað Toppar 2024 munu fara í 24 mismunandi fjallgöngur á árinu, ferðast um landið og hafa gaman. Fjöllin eru af öllum toga, allt frá góðum æfingarfjöllum á virkum kvöldum til stærri og hærri verkefna um helgar. Markmiðið er fyrst og fremst að njóta þó svo að markið er ávalt sett hátt.

Framundan er frábært ár, fullt af ævintýrum og skemmtun! Vertu með frá upphafi!

 

ATH : námskeiðið er hafið en hægt er að fá nánari upplýsingar og skrá sig á síðustu stundu með því að senda tölvupóst á netfangið info@afstad.com

 

Nánari upplýsingar eru veittar með tölvupósti á netfanginu info@afstad.com eða í síma okkar 790 2800.

Verð : 85.000kr.

Veittur er 20% afsláttur af seinna gjaldi ef hjón eða pör skrá sig saman (sama lögheimili).
Sendur er reikningur á þátttakendur og telst sæti frátekið þegar hann er greiddur. Hægt er að skipta greiðslum upp í allt að 4 skipti.
Nánari upplýsingar, fyrirkomulag, útbúnaður og dagskrá eru sendar með staðfestingarpósti.

Ath. námskeiðið fæst niðurgreitt hjá flestum stéttarfélögum. Við hvetjum alla til að kanna það hjá sínu.

Ferðaskilmálar

Vertu í bandi – spurðu – komdu með!

*Greitt sérstaklega fyrir bátsferðina