Description
Af Stað ULTRA ferð á Laugaveginn!
Að ganga Laugaveginn er frábært ávintýri. Fegurðin sem hálendið hefur upp á að bjóða er í aðalhlutverki og myndatækifærin óteljandi. Þetta er leið sem allir ættu að prófa einu sinni…eða tvisvar. Og það er það sem við ætlum að gera, nema að við ætlum að gera það á einum sólarhring og fá allar tegundir birtu beint í æð!
Farið verður að morgni frá Reykjavík með rútu og keyrt upp í Landmannalaugar. Sama rúta mun svo sækja okkur í Þórsmörk þar sem ferðinni lýkur.
Farin verður hefbundin leið, frá Landmannalaugum og alla leið inn í Þórsmörk. Gangan er 55km með um 500m hækkun sem tekin er að mestu leiti á fyrsta áfanga. Heildar göngutími er um 24 klst.
Um ULTRA ferð er að ræða þar sem gengið verður í einum rykk með reglulegum 30 mín stoppum. Ferðin hentar þeim sem eru í góðu líkamlegu formi og treysta sér í langa göngu með allar nauðsynjar á bakinu.
Leiðinni er skipt upp i 4 leggi:
1. Landmannalaugar – Hrafntinnusker (12km – 500m hækkun – 5 klst)
2. Hrafntinnusker – Álftavatn (12km – 500m lækkun – 4 klst)
3. Álftavatn – Emstrur (16km – 50 lækkun – 7 klst)
4. Emstrur – Þórsmörk (15km – 310m lækkun – 7 klst)
Nánari upplýsingar eru veittar með tölvupósti á netfanginu info@afstad.com eða í síma okkar 790 2800.
Innifalið:
-Leiðsögn
-Rúta
-Undirbúningsfundur fyrir ferð
Verð : 39.900kr.
Greitt er 10.000kr. í staðfestingargjald við skráningu.
Greitt er 29.900kr. í lokagreiðslu eigi síðar en fjórum vikum fyrir brottför.
Sendur er reikningur á þátttakendur og telst sæti frátekið þegar hann er greiddur.
Nánari upplýsingar um útbúnað, fyrirkomulag og dagskrá eru sendar með staðfestingarpósti.
Allar nánari upplýsingar eru sendar út með staðfestingarpósti eftir að skráningu lýkur.
Vertu í bandi – spurðu – komdu með!