Landmannalaugar og Háalda 1.128m

From: 25.900 kr.

2026 dagsetningar:
– 13. september

Boðið er upp á sérferðir fyrir hópa – sendu fyrirspurn á info@afstad.com

Category:

Description

Landmannalaugar þarf vart að kynna fyrir landsmönnum, svæðið hefur verið draumastaður margra frá unga aldri. En er eitthvað að sjá handan þeirra? Í þessari ferð ætlum við að komast að því!

Um dagsferð er að ræða þar sem farið verður með rútu inn í Landmannalaugar og gengið þaðan. Við munum ganga um fjölfarna- sem og fáfarna göngustíga og upplifunin verður því mikil.

Genginn verður hringur um svæðið og margir fallegustu staðirnir heimsóttir. Farið verður upp á hæsta tind Landmannalaugar, Háöldu þaðan sem er magnað útsýni yfir Fjallabak. Einnig verður farið að Jökulgili og horft ofan á Uppgönguhryggi og Jökulgilskvísl. Allt eru þetta mjög myndrænir staðir og verður því mikið um stopp á leiðinni. Göngulengdin er um 25km með um 800m hækkun. Gert er ráð fyrir ca 8 klst göngu með stoppum. Þetta er frábær ferð fyrir alla þá sem treysta sér í langan og krefjandi dag á fjöllum. Leiðin hentar einnig vel þeim sem finna fyrir lofthræðslu þar sem lítið er um mjög brattar hlíðar.

Nánari upplýsingar eru veittar með tölvupósti á netfanginu info@afstad.com eða í síma okkar 790 2800.

Innifalið:
– Leiðsögn
– Rúta

Verð : 25.900kr.
Greitt er 7.000kr. í staðfestingargjald við skráningu og telst þá sæti vera frátekið
Greitt er 18.900kr. í lokagreiðslu eigi síðar en fjórum vikum fyrir brottför.
Sendur er reikningur á þátttakendur og telst sæti frátekið þegar hann er greiddur.
Nánari upplýsingar um útbúnað, fyrirkomulag og dagskrá eru sendar með staðfestingarpósti.

Ferðaskilmálar

Vertu í bandi – spurðu – komdu með!