Description
Af Stað ULTRA ferð yfir Kjalveg hinn forna!
Kjalvegur hinn forni er forn og fáfarin gönguleið sem liggur austan megin við Langjökul. Leiðin er falleg, mikil náttúruparadís og engan veginn eins og Kjalvegur sem við þekkjum í gegnum bílrúðuna!
Gengið er frá Hveradölum og í átt að Hvítárnesi. Á leiðinni er farið um Þjófadali, meðfram Sandfelli og Þverbrekkumúla. Leiðin er 42km löng með um 700m heildar hækkun. Hún ætti að taka okkur um 14-17 klst.
Farið er með rútu frá Reykjavík á Hveravelli þar sem gangan hefst. Loks sækir sama rúta hópinn á Hvítárnes og keyrir aftur í bæinn.
Um ULTRA ferð er að ræða þar sem gengið verður í einum rykk með reglulegum 30 mín stoppum. Ferðin hentar þeim sem eru í góðu líkamlegu formi og treysta sér í langa göngu með allar nauðsynjar á bakinu.
Leiðinni er skipt upp í 3 leggi:
- Hveravelli – Þjófadalir (10km – 100m hækkun – 4 klst)
- Þjófadalir – Þverbrekkumúli (15km – 300m hækkun – 5 klst)
- Þverbrekkumúli – Hvítárnes (17km – 300m hækkun – 6 klst)
Nánari upplýsingar eru veittar með tölvupósti á netfanginu info@afstad.com eða í síma okkar 790 2800.
Innifalið:
-Leiðsögn
-Rúta
-Undirbúningsfundur fyrir ferð
Verð : 39.900kr.
Greitt er 10.000kr. í staðfestingargjald við skráningu.
Greitt er 29.900kr. í lokagreiðslu eigi síðar en fjórum vikum fyrir brottför.
Sendur er reikningur á þátttakendur og telst sæti frátekið þegar hann er greiddur.
Nánari upplýsingar um útbúnað, fyrirkomulag og dagskrá eru sendar með staðfestingarpósti.
Allar nánari upplýsingar eru sendar út með staðfestingarpósti eftir að skráningu lýkur.
Vertu í bandi – spurðu – komdu með!