Description
Ævintýralandið Georgía og hinn mögnuðu Kákasusfjöll bíða okkar sumarið 2026!
Sumarið 2026 setjum við stefnuna á Kákasusfjöllin í Georgíu og á hinn háa og magnaða tind Kazbek í yfir 5.000m hæð. Hér á ferðinni er ný og spennandi ferð sem svíkur engan fjallaþyrstan einstakling. Komið með, þessi verður geggjuð!
Fjallið liggur hátt í Kákasusfjöllunum, sunnan megin við landamæri Rússlands og er eitt af þessum formfögru fjöllum svæðisins. Það er mjög vinsælt uppgöngu þar sem það býður upp á góða blöndu af fjallgöngu og ævintýramennsku. Tindurinn er 5.054m hár og hentar afar vel sem fyrsti háfjallatindur hvers og eins. Ekkert klifur er á leiðinni og aðeins uppganga, ekki ósvipað Hvannadalshnúk eða Hrútsfjallstinda hér á landi.
Á fjallinu munum við gista í skálum þar sem tekið verður vel á móti hópnum. Þægindin verða til staðar þrátt fyrir hæðina.
Þátttakendur þurfa að vera í góðu líkamlegu formi, ganga á fjöll reglulega fyrir brottför og æfa sig þannig. Besta æfingin er jú að ganga á fjöll. Gengið er á öllum tegundum undirlendis, allt frá góðum stigum til grófari leiða og loks til ísilagðra brekka á fjallinu sjálfu.
Dagskráin er sem hér segir:
Dagur 1 (23. júlí)
Við komuna til Tíblisi verður tekið á móti okkur af heimamönnum sem verða með okkur í ferðinni. Gist verður á 3ja stjörnu hóteli í höfuðborginni.
Dagur 2 (24. júlí)
Eftir morgunmat á hótelinu verður keyrt til Sameba Trinity kirkju þar sem gangan okkar hefst. Aksturinn tekur um 3,5 klst með viðkomu í fjallabænum Stepantsminda. Gangan þennan daginn mun taka okkur um 3 klst, hækkunin verður 850m og lengdin um 5km. Við komum upp í glæsilegan skála okkar í 3.020m hæð og eyðum þar næstu tveimur nóttum.
Morgunmatur – kvöldmatur
Dagur 3 (25. júlí)
Við nýtum daginn í aðlögun í dag og göngum upp í 4.100m hæð. Komum svo niður í skálann okkar og njótum hvíldar.
Morgunmatur – hádegismatur – kvöldmatur
Dagur 4 (26. júlí)
Í dag göngun við upp í grunnbúðir fjallsins, í næsta skála okkar í 3.700m hæð, Betlemi skála. Gangan er ekki löng í km eða um 4km en farið verður hægt yfir vegna hæðar. Við komum inn á jökulinn þar sem farið verður í brodda á leiðinni upp. Hækkunin verður um 750m og mun gangan taka okkur 3-4 klst. Eftir hádegismat tökum við svo létta æfingu og upprifjun í notkun brodda, exi og línu.
Morgunmatur – hádegismatur – kvöldmatur
Dagur 5 (27. júlí)
Toppadagur! Í dag vöknum við snemma og tökum alpastart eða um kl. 1am. Landslagið verður af öllum toga en að mestu verður gengið á ís og snjó. Við munum nota jöklaútbúnað og ganga í línu alla leið upp á topp þar sem brattar brekkur og hlíðar taka á móti okkur. Toppurinn sjálfur er síðan hægfarinn enda brattur á fótinn. Athugið þó að ekkert klifur er á leiðinni. Gera má ráð fyrir 12-14 klst degi þar sem við munum lækka okkur í fyrsta skála í 3.020m hæð eftir að toppi verður náð. Af toppnum er óhindrað og magnað útsýni yfir Kákasusfjöllin, jökla í bland við græna og djúpa dali.
Morgunmatur – kvöldmatur
Dagur 6 (28. júlí)
Eftir morgunmat höldum við áfram að lækka okkur með lungun full af súrefni niður í Sameba Trinity kirkju þar sem farið okkar bíður. Þessir 5km munu taka okkur um 2 klst enda á leiðinni niður núna. Við stoppum í kirkjunni og skoðum okkur um þessa gífurlega fallegu byggingu. Svo höldum við áleiðis til Tíblisi með viðkomu í Stepantsminda bænum, Ananuri kastala og að lokum í Svetitskhoveli kirkju. Þetta verður því frábær ferðadagur það sem merkir og fallegir staðir verða heimsóttir. Endum svo daginn á hótelinu okkar í Tíblisi.
Morgunmatur – hádegismatur – kvöldmatur
Dagur 7 (29. júlí)
Þessi dagur er hafður til vara fyrir toppadaginn ef ske kynni að veður stríði okkur.
Dagur 8 (30. júlí)
Ferðadagur heim aftur. Eftir morunmat verður okkur ekið á flugvöllinn þar sem við fljúgum heim aftur með myndavélar fullar af myndum og hausinn fullan af minningum.
Morgunmatur
Innifalið:
– Íslensk og Georgísk fararstjórn
– Gisting skv. ferðaplani í tveggja/þriggja manna herbergjum í Tíblisi (dagur 1, 6 og 7) – Hægt er að gista í einbýli fyrir 10.000kr aukalega.
– Gisting skv. ferðaplani í sameiginlegum herbergjum/kojum (dagur 2, 3, 4 og 5)
– Allar ferðir til og frá flugvelli, hóteli og upphafsstað göngu
– Fullt fæði skv. ferðaplani
– Aðgangur að rafmagni til að hlaða öll raftæki á fjallinu
– Þjóðgarðsleyfi og önnur gönguleyfi (toppa skirteini)
– Aðgangur að þeim stöðum sem heimsóttir verða á degi 6
– 2x undirbúningsfundir + 1x undirbúningsganga hér á landi
Ekki innifalið:
– Flug til og frá Tíblisi í Georgíu – Af Stað mun bjóða upp á ferðatillögu fyrir þá sem vilja fljúga saman
– Tryggingar við ferðina*
– Annar matur, snarl eða drykkir sem ekki tilgreindir eru í ferðaplani
– Önnur þjónusta á göngu sem ekki tilgreind er í ferðaplani, s.s. WiFi í skálum o.fl.
– Snarl og millimál á göngu
– Persónulegur klifurútbúnaður s.s exi, jöklabroddar, belti, hjálmur og karabínur (hægt að leigja í skálanum á degi 2 og því þarf ekki að bera upp í 3.020m hæð)
– Svefnpoki fyrir skála á fjallinu (hægt að leiga í Stepantsminda)
Nánari upplýsingar eru veittar með tölvupósti á netfanginu info@afstad.com eða í síma okkar 790 2800.
Ath. takmarkaður sætafjöldi er í þessa ferð og lokast fyrir skráningu þann 1. apríl 2026.
Verð : 269.000kr.
Greitt er 69.000kr. í staðfestingargjald við skráningu og telst sætið vera frátekið þá.
Greitt er 200.000kr. í lokagreiðslu eigi síðar en sex vikum fyrir brottför. Hægt er að skipta lokagreiðslu upp í allt að 5 greiðslur. Sendir eru reikningar á þátttakendur og greitt er með millifærslu.
Nánari upplýsingar um útbúnað, fyrirkomulag og dagskrá eru sendar með staðfestingarpósti.
*Ferðatrygging, forfallatrygging, slysa- og sjúkdómatrygging ásamt neyðartryggingu (valkvætt) Global Rescue. Hægt er að fá þessar tryggingar hjá sínu tryggingafélagi en mikilvægt er að tilgreina hvert ferðinni sé heitið. Af Stað býður upp á ráðgjöf hvað þetta varðar.
Vertu í bandi – spurðu – komdu með!





