Af Stað – Jöklar 2025

From: 75.000 kr.

Hefur þig langað til að ganga á hæstu tinda Íslands, standa á toppnum og fagna sigrinum? Þá er hér eitthvað fyrir þig! Hér er á ferðinni 5 jökla dagskrá ásamt frábærum undirbúningsferðum!

Category:

Description

 

Með góðum undirbúningi, faglegri kennslu og þjálfun eru jöklarnir í seilingarfjarlægð. Jöklar 2025 býður upp á akkúrat þetta og gott betur! Láttu drauminn rætast og vertu með frá upphafi! Þessi dagskrá er nefnilega pökkuð af góðgæti!

Í vetur og vor ætlum við að læra á útbúnað okkar, allt frá fatnaði til jöklabúnaðar. Við ætlum að fræðast um hvernig skal ganga upp háar brekkur, hvernig á að beita stöfum niður þær, hvernig á að huga að öndun til að minnka mæði og hvað skal borða og drekka til að fjallgöngurnar verði sem ánægjulegastar. Framundan eru skemmtilegar og fræðandi vikur, fullar af fróðleik og frábærum fjöllum. Við byrjum rólega og smám saman förum við hærra og lengra, alla leið á toppinn!

Komdu með í þetta ævintýri!

Verkefnið samanstendur af 14 mismunandi göngum, 2 rafrænum fundum og sérstakri kennslu á jöklaútbúnað svo allir verða með réttu þekkinguna fyrir þær göngur. Í boði verða tveir undirbúningsjöklar (Snæfellsjökull og Eyjafjallajökull) fyrir ferðirnar í maí þegar farið verður á þrjá háa og magnaða tinda, Birnudalstind, Hvannadalshnúk og Hrútfjallstinda. Já, allar þessar göngur í einum pakka, 5 jöklar og frábærar undirbúningsferðir!

 

Námskeiðið er nú hafið – hægt er að fá allar nánari upplýsingar á info@afstad.com

 

Nánari upplýsingar eru veittar með tölvupósti á netfanginu info@afstad.com eða í síma okkar 790 2800.

Verð : 75.000kr.

Veittur er 20% afsláttur af seinna gjaldi ef hjón eða pör skrá sig saman (sama lögheimili).
Sendur er reikningur á þátttakendur og telst sæti frátekið þegar hann er greiddur. Hægt er að skipta greiðslum upp í allt að 4 skipti.
Nánari upplýsingar, fyrirkomulag, útbúnaður og dagskrá eru sendar með staðfestingarpósti.

Ath. námskeiðið fæst niðurgreitt hjá flestum stéttarfélögum. Við hvetjum alla til að kanna það hjá sínu.

Ferðaskilmálar

Vertu í bandi – spurðu – komdu með!

 

*Dagsetningar geta breyst með tilliti til veðurs.