Description
Af Stað ULTRA ferð á Hellismannaleið!
Hellismannaleið er ein af þessum fallegu leiðum á fjallabaki þar sem þátttakendur fá að upplifa hið margbrotna landslag sem hálendið hefur upp á að bjóða. Allt frá gulu landslagi Landmannalauga, til grænna dala og magnaðs hrauns. Og að þessu sinni ætlum við að upplifa þetta allt í einni ferð á 21 klst!
Ferðin hefst við Rjúpnavelli þar sem rúta mun sækja okkur og keyra upp í Landmannalaugar. Þátttakendur koma sér sjálfir á Rjúpnavelli og skilja bíla sína eftir þar.
Farin verður hefbundin leið frá Landmannalaugum á Rjúpnavelli, alls um 55km, með um 1.500m heildar hækkun þó svo að hæðin lækki með leiðinni. Heildar göngutími er um 21 klst.
Um ULTRA ferð er að ræða þar sem gengið verður í einum rykk með reglulegum 30 mín stoppum. Ferðin hentar þeim sem eru í góðu líkamlegu formi og treysta sér í langa göngu með allar nauðsynjar á bakinu.
Leiðinni er skipt upp i 3 leggi:
1. Landmannalaugar – Landmannahellir (17km – 600m hækkun – 7 klst)
2. Landmannahellir – Áfangagil (17km – 400m hækkun – 7 klst)
3. Áfangagil – Rjúpnavellir (21km – 400m hækkun – 7 klst)
Nánari upplýsingar eru veittar með tölvupósti á netfanginu info@afstad.com eða í síma okkar 790 2800.
Innifalið:
-Leiðsögn
-Rúta
-Undirbúningsfundur fyrir ferð
Verð : 39.900kr.
Greitt er 10.000kr. í staðfestingargjald við skráningu.
Greitt er 29.900kr. í lokagreiðslu eigi síðar en fjórum vikum fyrir brottför.
Sendur er reikningur á þátttakendur og telst sæti frátekið þegar hann er greiddur.
Nánari upplýsingar um útbúnað, fyrirkomulag og dagskrá eru sendar með staðfestingarpósti.
Allar nánari upplýsingar eru sendar út með staðfestingarpósti eftir að skráningu lýkur.
Vertu í bandi – spurðu – komdu með!