Grænihryggur

From: 25.900 kr.

2024 dagsetningar:
– 20. júlí
– 27. júlí
– 28. júlí
– 10. ágúst
– 11. ágúst
– 17. ágúst
– 24. ágúst
– 8. september

Boðið er upp á sérferðir fyrir hópa – sendu fyrirspurn á info@afstad.com

Category:

Description

Grænihryggur er eitt af undrum Íslands! Hann liggur skærgrænn á litinn umvafinn gulu og brúnu landslagi Landmannalauga. Hann er fjarskafallegur enn ennþá betri í nærmynd!

Við munum ganga hina klassísku leið um Halldórsgil, Sveinsgil og alla leið að Grænahrygg. Á leiðinni þarf að vaða Jökulgilskvíslina þó nokkrum sinnum og geta vöðin náð frá hné upp að læri. Gott er því að vera með vaðskó með sér til að eiga auðveldara með verkefnið.

Stoppað er reglulega til að borða nesti og taka myndir enda mjög falleg og myndvæn gönguleið. Við Grænahrygg fá allir nægan tíma til að spá og spekúlera í fegurðinni áður en gengið verður heim í rútu.

Farið er að morgni úr bænum með rútu og hefst gangan við Halldórsgil um kl. 11. Komið er aftur að upphafsstað þar sem rútan mun bíða okkar um kl. 19, teygt á þreyttum vöðvum og haldið síðan heim.
Göngulengdin er um 18km með um 800m heildarhækkun. Gangan tekur að öllu jöfnu um 8 klst. Þetta er frábær ferð fyrir alla þá sem treysta sér í lengri göngudag.

Nánari upplýsingar eru veittar með tölvupósti á netfanginu info@afstad.com eða í síma okkar 790 2800.

Innifalið:
– Leiðsögn
– Rúta

Verð : 25.900kr.
Greitt er 7.000kr. í staðfestingargjald við skráningu og telst þá sæti vera frátekið
Greitt er 18.900kr. í lokagreiðslu eigi síðar en fjórum vikum fyrir brottför.
Sendur er reikningur á þátttakendur og telst sæti frátekið þegar hann er greiddur.
Nánari upplýsingar um útbúnað, fyrirkomulag og dagskrá eru sendar með staðfestingarpósti.

Ferðaskilmálar

Vertu í bandi – spurðu – komdu með!