Af Stað – Toppar 2026

From: 85.000 kr.

Toppaðu þig með því að toppa árið 2026 – sköpum minningar saman!

Category:

Description

Vantar þig áskorun fyrir komandi ár, fasta liði í dagatalinu, hóp til að hvetja þig áfram og faglega leiðsögn? Þá er þetta námskeiðið fyrir þig!

Af Stað Toppar 2026 munu fara í 25 mismunandi fjallgöngur á árinu, ferðast um landið og hafa gaman. Fjöllin eru af öllum toga, allt frá góðum æfingarfjöllum á virkum kvöldum til stærri og hærri verkefna um helgar. Markmiðið er fyrst og fremst að njóta þó svo að markið sé ávalt sett hátt.
Við ætlum á toppa, um dali, á jökla og í magnaðar helgarferðir. Allt þetta og miklu miklu meira til! Þetta er frábært námskeið sem blandar fræðslu saman við skemmtileg og krefjandi fjöll.

Framundan er frábært ár, fullt af ævintýrum og skemmtun! Vertu með frá upphafi og skapaðu minningar með okkur!

 

Verkefnið er nú hafið en hægt er að koma inn í það með því að senda póst á okkur á info@afstad.com

 

Nánari upplýsingar eru veittar með tölvupósti á netfanginu info@afstad.com eða í síma okkar 790 2800.

Verð : 85.000kr.

Veittur er 20% afsláttur af seinna gjaldi ef hjón eða pör skrá sig saman (sama lögheimili).
Sendur er reikningur á þátttakendur og telst sæti frátekið þegar hann er greiddur. Hægt er að skipta greiðslum upp í allt að 4 skipti.
Nánari upplýsingar, fyrirkomulag, útbúnaður og dagskrá eru sendar með staðfestingarpósti.

Ath. námskeiðið fæst niðurgreitt hjá flestum stéttarfélögum. Við hvetjum alla til að kanna það hjá sínu.

Ferðaskilmálar

Vertu í bandi – spurðu – komdu með!

*Dagsetningar/göngur geta breyst með tilliti til veðurs.