Af Stað – Toppar 2026 – seinni hálfleikur

From: 40.000 kr.

Toppaðu þig með því að toppa árið 2026 – sköpum minningar saman!

Category:

Description

Vantar þig áskorun fyrir haustið, fasta liði í dagatalinu, hóp til að hvetja þig áfram og faglega leiðsögn? Þá er þetta námskeiðið fyrir þig! Kláraðu árið með stæl!

Af Stað Toppar er gönguhópur sem ferðast saman, gengur á fjöll og hefur mikið gaman! Hópurinn hefur verið starfræktur undanfarin ár, stækkað og dafnað vel og ávallt með sama markmið, að njóta sem mest! Í haust opnum við aftur á skráningu og bjóðum ykkur öll velkomin að slást með í för. Framundan er frábær dagskrá þar sem gengið verður á fjöll og dali og farið í skemmtilegar helgarferðir. Hér sameinum við fræðslu, skemmtun og frábærar leiðir!

Vertu með og skapaðu minningar með okkur!

 

16.08 – Hekla
05.09 – Þakgil
16.09 – Þyrill í Hvalfirði
26.09 – Innsta Jarlhetta
07.10 – Arnarfell á Þingvöllum
17.10 – Fanntófell
28.10 – Grímmannsfell frá Hafravatni
07.11 – Hátindur Esju
18.11 – Vatnshlíðarhorn í Krýsuvík
28.11 – Grímsfjall á Snæfellsnesi
09.12 – Úlfarsfell

 

Nánari upplýsingar eru veittar með tölvupósti á netfanginu info@afstad.com eða í síma okkar 790 2800.

Verð : 40.000kr.

Veittur er 20% afsláttur af seinna gjaldi ef hjón eða pör skrá sig saman (sama lögheimili).
Sendur er reikningur á þátttakendur og telst sæti frátekið þegar hann er greiddur.
Nánari upplýsingar, fyrirkomulag, útbúnaður og dagskrá eru sendar með staðfestingarpósti.

Ath. námskeiðið fæst niðurgreitt hjá flestum stéttarfélögum. Við hvetjum alla til að kanna það hjá sínu.

Ferðaskilmálar

Vertu í bandi – spurðu – komdu með!

*Dagsetningar/göngur geta breyst með tilliti til veðurs.