Press "Enter" to skip to content

Ferðaáætlun 2026 er lent!

Af Stað fagnar áttunda starfsári sínu með útgáfu nýrrar og sjóðheitrar ferðaáætlunar fyrir árið 2026! Markmiðið með þessari áætlun var að halda í fjölbreytileikan og bjóða upp á þétta dagskrá sem sem flestir gætu haft gaman af og tekið þátt í. Úrvalið verður mikið og hvetjum við alla til að skoða, plana og taka fjalladaga strax frá!

Á hverju ári höfum við boðið upp á mikið og gott úrval af hópum þar sem allir ættu að geta fundið dagskrá við sitt hæfi. Jökla hópurinn okkar verður á sínum stað eins og fyrri ár. Hér á ferðinni er frábært námskeið þar sem þátttakendur læra tökin og trixin sem þarf til að toppa marga af fallegustu jöklum landsins. Námskeiðið endar í maí með hvelli, á þeim allra hæstu. Dagskráin er þétt og býður upp á fræðslu, göngur og mikið stuð. Ekki toppa bara einn jökul, komdu með okkur á þá alla!

Fyrir þá sem eru að leita að stærri dagskrá, gönguhóp sem gengur allt árið um kring, ferðast um landið og fer í skemmtilegar göngur, stuttar og langar, jökla og dali, með stóra og smáa bakpoka á bakinu…þá er Toppa hópurinn okkar málið! Dagskráin er stór, aðhaldið gott og minningarnar margar eftir árið. Hér kemur fólk aftur og aftur og aftur….

Hvað með þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í útivist? Þá bjóðum við upp á byrjendanámskeið, annars vegar í fjallgöngum og hins vegar í ferðum með allt á bakinu. Þessi námskeið eru sett upp með það í huga að þátttakendur öðlist reynslu og sjálfstraust til þess að halda áfram á eigin vegum eða í hóp, koma sér út og njóta alls þess sem náttúran býður upp á.

Veittur er 20% afsláttur af öllum námskeiðum og ferðum (innlendum og erlendum) í forsölu með kóðanum “forskraning2026″ og gildir hann til 10. desember nk.*

Dagsferðirnar verða á sínum stað eins og undanfarin ár, á heiðum og hæðum, fjöllum og jöklum. Dagsferðir sem og lengri bakpokaferðir.
Jöklaferðirnar hafa alltaf verið vinsælar hjá okkur enda úrvalið mikið. Við leggjum mikið upp úr upplifun sem og öryggi og hafa þessar ferðir verið mikil ævintýri. Jöklarnir freista margra og við viljum hjálpa við að láta draumana rætast!

Eins og fyrri ár munum við eyða hluta ársins erlendis.
Nepal hefur slegið í gegn hjá íslendingum og höfum við boðið upp á ferðir þangað árlega. Á næsta ári verður engin breyting á því. Boðið verður upp á göngu upp í grunnbúðir Everest fjalls annars vegar og hins vegar upp í grunnbúðir Annapurna. Hér er valið á milli erfitt en báðar þessar ferðir bjóða upp á allt það besta sem Nepal hefur upp á að bjóða. Fyrir þá sem þyrstir í að toppa tind þá bjóðum við upp á fjallgöngu á hinn 6.119m háan Lobuche tind. Mögnuð ferð!
Í ár var boðið upp á ferð upp í Há-Tatrafjöllin á landamærum Póllands og Slóvakíu sem sló rækilega í gegn. Á næsta ári endurtökum við leikinn og höldum aftur á svæðið! Þetta er þó ekki eina ferðin til Evrópu á árinu því við ætlum í fjallaferð til Georgíu, upp í Kákasusfjöllin þar sem stefnan verður sett á Kazbek tind, 5.045m háan og magnaðan. Þessi ferð er nýjung á árinu sem ekki hefur verið boðið upp á hér á landi áður!

Árið 2026 verður frábært og hlökkum við mikið til!
Við viljum sjá sem flesta á ferðinni og bjóðum alla velkomna með. Nýjir félagar, eldri félagar, byrjendur og lengra komnir…allir með! Gerum næsta ár að því besta hingað til!
Á instagram síðunni okkar má sjá myndir úr starfinu síðastliðin misseri. Minningarnar eru margar og brosandi andlitin út um allt. Svona á þetta að vera!

Við þökkum ykkur fyrir frábær sjö ár og bíðum spennt eftir því áttunda. Sjáumst á fjöllum þar sem við höfum öll gaman saman! ❤️

*afslátturinn gildir aðeins af fullu verði og ekki með öðrum tilboðum eða af staðfestingargjöldum