Á þetta við um þig? Ef svo er þá engar áhyggjur, við erum fleiri sem hugsum svona.
Þegar sólin er farin að lækka, rútínan eftir sumarfrí að hefjast og kuldinn að bíta meira í þá eigum við það til að ganga frá gönguskónum eftir gott sumar og segja það gott. En það þarf ekki að vera þannig! Haustið er nefnilega frábær tími til útivistar.
Leiðirnar sem við höfum gengið yfir sumarið taka á sig nýja mynd, umhverfið breytir um lit og skiptir um ham. Ekki er eins hlýtt í lofti og um hásumar og því minni hætta á því að svitna í gegn og eiga erfitt með hreyfingu sökum hita (þó svo við kvörtum ekki yfir hlýju dögunum af og til). Nú breytist líka fataskápurinn okkar og loksins hægt að draga fram hlýrri jakka sem hafa fengið að dúsa inn í fataskáp í marga mánuði. Nýjir jakkar = nýjar myndir 🙂 En fyrst og fremst er haustið frábær tími til að halda áfram því góða striki sem við höfum verið á í sumar, halda áfram að njóta útiverunnar og láta ekki smá kulda eða rigningu stoppa sig.
Dagskráin hjá okkur í haust er stútfull af skemmtilegum ferðum sem hægt er að skoða með því að smella á hlekkinn hér að neðan.
Af stað, haustið bíður okkar!






